
Pizzasnúðar með ólífum og grillaðri papriku

Innihald
1 kg hveiti
250 ml mjólk
350 ml volgt vatn
25 g pressuger eða 1 msk þurrger
1 tsk sykur
4 msk ólífuolía
Saclà grænar steinlausar ólífur, heilar eða í sneiðum (rondelle)
1 krús Saclà grilluð paprika
Undirbúningur
Leysið gerið upp í volgri blöndu vatns og mjólkur (æskilegra að blandan sé ekki vera heitari en 37°, vökvinn skal vera sem næst líkamshita). Dýfið fingri í vatnið eða notið hitamæli. Sniðugt getur verið að hella sjóðheitu vatni saman við kalda mjólk. Bætið, salti, sykri og olíu saman við og því næst næstum öllu hveitinu. Hrærið deigið saman og hnoðið svo hægt og bítandi og bætið í hveiti eftir þörfum. Hnoðið í kúlu og látið hefast í skál undir klút á heitum stað í 2 tíma.
Fletjið deigið út á hveitibornu borði í stóran ferhyrning, dreyfið söxuðum paprikubitunum og ólífunum (heilum eða í sneiðum) yfir deigið og rúllið því varlega upp í stóra spægipylsu. Skerið deigpylsuna niður í ca. 2 cm breiðar sneiðar og látið snúðana hefast í ca. 1 klst. til viðbótar á bökunarpappírsklæddri bökunarplötu. Bakið snúðana við 220° þar til þeir hafa fengið á sig ljósgyllta áferð.
Uppskriftarspjall
Ég hef alltaf verið mikil snúðakona. Snúðar eru eitthvað svo krúttlegir og koma manni alltaf í gott skap, hvort sem þeir eru sætir eða saltir. Þessir eru tilvaldir í partýið, saumaklúbbinn eða sem kjarnmikið nesti í vinnuna, skólann, í lautarferð, fjallgöngu osfrv. Þetta sama deig nota ég til að búa til pizzur og focaccia. Þetta er náttúrlega stór uppskrift og fjölmargir snúðar sem fást úr þessari uppskrift. Minnkið uppskriftina eftir þörfum. Ég hef uppskriftina yfirleitt stóra og skelli í frystinn hluta af afrakstrinum. Ekkert mál er að hita snúðana upp þiðnaða.
Fleiri uppskriftir frá Hönnu Friðriksdóttur
Powered by Blulab