Saclà var stofnað árið 1939 og býður upp á úrval afurða s.s. pestó og pastasósur, grænmeti í olíu (antipasti), súrsað grænmeti og ólífur af ýmsum gerðum sem mikil eftirspurn er orðin eftir um heim allan ekki síður en í heimalandinu. Saclà hefur á sextíu árum unnið sér inn það orðspor að vera í fremstu röð sem framleiðandi ekta ítalskrar gæðamatvöru.
Hægt er að skapa list hvort heldur er á diski eða í potti. Hvort sem um er að ræða fljótlegan smárétt eða kvöldverð fyrir vini, býður Saclà uppá hið ósvikna og fágaða bragð ítalskrar matargerðar á fljótlegan hátt. Uppgötvaðu hinar safaríku samsetningar okkar og settu saman þinn eigin matseðil með aðstoð vefsíðu Saclà.
Þrjár kynslóðir Ercole-fjölskyldunnar hafa átt ríkan þátt í að móta hinar djúpu menningarlegu rætur Saclà. Allt frá upphafi, árið 1939, hefur hver kynslóð haft sköpunargleði, sveigjanleika og eldmóð að leiðarljósi sem eru einmitt kjarni heimspeki okkar og menningar.
www.sacla.com
Powered by Blulab