Allt sem vita þarf um ávöxt sólarinnar
Ef þú heimsækir eitthvert þorp í suðlægustu héruðum Ítalíu, Puglia eða Calabria í ágúst, er sama hvar þig ber niður; fyrir framan hvert hús gefur að líta sundurskorna tómata sem liggja til þurrkunar í sólinni. Net hafa verið breidd yfir tómatana til að halda frá flugum og þannig liggja tómatarnir til þurrkunar í heitri sólinni og þorpsloftið er mettað af hinum tilheyrandi sætkennda ilmi þeirra. Hér er á ferðinni margra alda hefð og um er að ræða eina að aðferðunum til að varðveita hluta tómatauppskerunnar yfir vetrarmánuðina.
Það er dálítið kúnstugt til þess að hugsa að þessi vinnsluaðferð hafi viðgengist öldum saman, kynslóð fram af kynslóð áður en umheimurinn kveikti á perunni og uppgötvaði hvílíkt lostæti sólþurrkaðir tómatar eru. Eftirspurnin eftir sólþurrkuðum tómötum hefur aukist til muna undanfarin ár, en henni er enn að stærstum hluta mætt af tiltölulega fámennum hópi staðbundinna framleiðenda.
Sólþurrkaðir tómatar
Feikilegt magn af tómötum kemur frá héruðunum við Miðjarðarhaf, en aðeins lítill hluti uppskerunnar er nýttur til framleiðslu á sólþurrkuðum tómötum. Langsamlega stærsti hluti uppskerunnar er niðursoðinn eða notaður í sósur.
Snemma vors er jarðvegurinn undirbúinn með náttúrulegum áburði. Það er mjög mikilvægt að velja bestu akrana til ræktunarinnar fyrir tómatana. Þeir sem eru umkringdir ólífulundum eru mjög ákjósanlegir þar sem ólífutrén hjálpa til við að gera jarðveginn frjósamari. Um miðjan apríl er ungum fræplöntum plantað. Vökvun er nauðsynleg til að tryggja það að hver planta fái nægilegt vatn.
Þegar tómatarnir eru þroskaðir flykkjast heimamenn, aðallega konur niður á akrana til að inna af hendi hina miklu erfiðisvinnu sem tómatatínsla er: það þarf að teygja sig inn á milli hins græna laufhafs hinnar lágvöxnu klifurjurtar og næla í hina rauðu og bústnu dýrgripi sem fela sig í knippum inni í þéttu laufhafinu. Bestu eintökin eru svo valin til sólþurrkunar. Þau eru þvegin, skorin í tvennt, lögð til þurrkunar í sólinni í löngum rekkum, salti stráð yfir og svo eru rekkarnir þaktir með netum.
Tómatarnir eru síðan látir þurrkast í sólinn í fjóra til fimm daga.
Það þarf 11 kíló af ferskum tómötum til að fá 1 kíló af sólþurrkuðum tómötum.
Nokkrar uppskriftir með Saclà sólþurrkuðum tómötum
Powered by Blulab