Saclà: fjölskyldufyrirtæki
Þrjár kynslóðir Ercolefjölskyldunnar hafa skapað hinar djúpu menningarrætur Saclà. Frá upphafi, 1939, hefur hver kynslóð byggt á þeim sköpunaranda, sveigjanleika og einurð sem er grundvöllur heimspeki okkar og menningar. Saclà var stofnað 1939 í Asti, í hinu frjósama Piemontehéraði á Norður Ítalíu. Öldum saman hefur svæðið umhverfis Asti, hið svonefnda "Astigiano", verið vel þekkt fyrir sitt ríkulega hágæða grænmeti.
Piera og Secondo Ercole
Piera og Secondo Ercole, stofnendur fyrirtækisins Saclà, einsettu sér að nota reynslu þá sem þau öðluðust í þessu héraði og að bæta geymslu grænmetis. Strax frá upphafi fókuseraði fyrirtækið á að meðhöndla af varfærni nýtt hráefni og að halda upprunalegu bragði þess. Samhliða örum vexti jók Saclà sífellt vöruval sitt og varð brátt einn framsæknasti matarframleiðandi á Ítalíu, og er, á markaðnum í dag, leiðandi hvað varðar ólífur, súrsað grænmeti og forrétti.
Carlo Ercole
Carlo Ecole, eldri sonur stofnanda okkar, hefur verið heilinn bak við sköpunarstarf okkar. Við, aðnjótandi þeirrar blessunar sem hinn frjósami jarðvegur Piemonte er, deilum ástríðu hans fyrir fyrsta flokks lókal grænmeti, framreiddu samkvæmt upprunalegum lókal uppskriftum. Þetta er jú, í sérhverri pestókrukku, pastasósu og forrétti, leyndarmálið bak við hina unaðslegu bragðreynslu.
Lorenzo Ercole
Lorenzo Ercole, yngri sonur stofnandans, hefur veitt okkur tækni til að fanga bragð fullkomlega þroskaðs hráefnis, sem súrsað er nákvæmlega þegar það er fullkomið. Sveigjanlegur stjórnunarstíll hans og virðing fyrir árstíðatengingu framleiðslunnar eiga þátt í að móta kúltúr fyrirtækisins og að viðhalda og þróa langlíf sambönd okkar við lókal aðila, einkum þá sem útvega okkur vörur: bændurna sem eru okkar viðskiptafélagar.
Giuseppe Ercole
Giuseppe Ercole, sonur Carlo, hefur veitt nýjum krafti í þá hugsjón okkar að breiða út, á heimsvísu, þjóðar- og héraðsframreiðslu ítalskrar eldamennsku. Tápmikil nálgun hans við að skoða nýja og spennandi útvíkkun okkar sviðs er ævinlega tempruð af áherslu hans á það að við verðum að halda áfram að leggja rækt við okkar hefðbundnu framleiðslu, sem mörg hver er leiðandi á markaði.
Það er von okkar og metnaður varðandi framtíðina að Saclà verði áfram fjölskyldufyrirtæki. Við hlökkum til þeirrar framtíðar er ný kynslóð Ercolefjölskyldunnar heldur áfram að stýra okkar Saclàheimspeki, en í henni eru mannleg gildi í hávegum höfð - og fullkomnunarhvöt okkar liggur til grundvallar öllu sem við gerum.
Powered by Blulab